|
|
25.01.2009 12:56:48 / karussy
Áður en ég byrja að skrifa þá vil ég biðjast afsökunar á því hvað ég er svo lengi að skrifa. Það var nú ekki meiningin en það er bara búið að vera mikið að gera hjá mér síðan ég kom frá íslandi í desember. Ég mun aldrei koma þessu öllu hér á síðuna þannig að ég ætla reyna að vera stuttorð en við munum sjá hvort að ég geti það hehe. Ég var eina nótt hjá frændfólki mínu í kaupmannahöfn þegar ég lenti 28.des og fór í krikjugarðinn og bara hitta þau sem var rosalega gott, einmitt það sem ég þurfti og líka bara slaka á áður en ´langa lestarferðin myndi byrja næsta dag. Fyrst hélt ég að ég myndi ekki ná lestinni því við vorum svo mikið að tala saman en ég náði henni rétt svo, kom 1 mín áður en hún átti að fara afstað sem var bara fínt. En þá hófst leiðindaferðin í lestinni til álaborgar, en ég hugsaði bara um eitt að ég væri bráðum heima og myndi hitta Sören. Svo 2 dögum seinna fórum við til viborg að halda áramót með vinum sörens og það var mikið stuð og gaman. Góður matur og mikið talað en ekki mikið skotið upp, við vorum meira bara að horfa á hehe. Ég átti líka að fara í próf í janúar og ég átti að flytja fyrirlestur með hópinn minn um ritgerðina sem við skrifuðum og skiluðum fyrir jól, og við fengum að vita að þetta var gott hjá okkur og ef við hefðum fengið einkunn fyrir þetta þá myndum við fá 7eða10 en þetta var bara prufa svo að við fengum enga einkunn. Svo er ég núna í sundprófi og 1.dagur er búin og síðasti dagurinn er á fimmtudaginn, ég náði í síðustu viku og átti að synda 1000m og stökkvar frá 3metrum í fötum og meira og bjarga og mín bara náði þessu. Svo er meira með að stökkvar frá 1m.stökkpalli og bjarga og kafa svo að synda aðeins meira en það er ekki á tíma einsog 1000m. Þá á ég að synda bringu og skrið og bak og flug. En ég skrifa meira um það þegar ég er búin í prófinu. Ég er svo bara á fullu að æfa 4 til 6 sinnum í viku, það er pínu kalt en þá bara að klæða sig betur hehe. Svo er mín bara búin að kaupa sér nýjan síma og ekki samlokusíma, minn gamli sími gat ekki meira og var með stæla þannig að núna á ég lítinn síma sem er svo létt að þegar ég fyrst tók hann upp flaug hann næstum upp í loft. En þetta er fínn sími og getur gert allt sem ég vil að hann gerir. Svo það síðasta nýtt er að ég er að fara á vinnustað og á að vinna í 10 vikur, á að byrja 2.feb og verð til 17.apríl. ég er svaka spennt og get varla beðið, en vil skrifa meira þegar ég er byrjuð þar. Hehe Vonandi skrifa ég fljótlega aftur J
»
05.12.2008 20:53:07 / karussy
Desember og bráðum koma jólin, svo styttist í að ég kem heim til íslands um jólin...jjeeiiijjj samt stoppa ég ekki í langan í tíman en ég ætla að vera í Danmörku um áramótin. Það er búið að vera mikið gera hjá mér síðan ég skrifaði síðast en svona er þetta þegar maður er í skóla og svo æfa frjálsar 4 sinnum í viku. vona að það muni sjóa bráðum þannig að við fáum hvít jól en maður veit aldrei með veðrið. Snjór tilheyrir nú þegar það er komið desember ) Mín er bara að skrifa ritgerð á fullu og svo að fara kaupa jólagjafir og svona. En annars er ekki svo mikið nýtt hjá mér einsog er. En ætla samt að segja smá frá hvað ég hef verið að gera. Sem sagt skólinn er búinn og er bara að skrifa ritgerð fyrir prófið í janúar og það gengur svona ágætlega nema það er 2 í hópnum sem vilja ákveða allt hvað við eigum að skrifa og allt sem við gerum ekki nógu gott þannig að það er smá drama en vona að það gangi bara vel. Ég er að verða búin í sundnáminu svo er bara prófið líka í janúar og vona að ég nái því, held að ég nái því og þá get ég kennt krökkum og fullorðnum að synda og bara alla sem vilja læra synda og svona. Frjálsar ganga vel nema ég sneri mér fyrir 3 vikum síðan og finn enn fyrir því en ég vona að það er ekki slæmt, en við æfum enn úti í kuldanum, þannig að ég er geggjað kvefuð því við æfum í rigningu og snjókomu(þegar það snjóar) en svona er það þegar maður æfir frjálsar ) Sem sagt mikið að gera hjá mér núna fram til 19.des þá kem ég til íslands. Þannig að það er langt á milli skrifin hjá mér er það útaf því það er mikið að gera hjá mér. En eitt get ég sagt, mamma sendi mér tromp og súkkulaði svo að ég gæti bakað trompkökur og þær urðu bara rosalega góðar og erum við sören næstum búin með skammtin samt gaf ég Joan smá og líka hópnum mínum. ) En nóg í bili...við sjáumst nú fljótlega á íslandi
»
08.11.2008 15:28:08 / karussy
Hvað er að gerast fyrir dömuna hér....bara gleymir alltaf að skrifa á síðuna...þetta gengur ekki lengur. Það er svo sem ekkert mikið nýtt búið að gerast hjá mér síðan síðast. Bara skóli og allt það sama og venjulega. Nema auðvitað fylgist maður með allt bankavesenið sem er á íslandi núna og er bara að bíða þangað til maður getur millifært pening en annars fæ ég su frá dk þannig að ég er bara í ágætismálum einsog er....en þetta er auðvitað ekkert skemmtilegt þegar svona lagað gerist en hvað getur maður gert nema krossað fingra og vona það besta. Jæja tölum um eitthvað skemmtilegra en þetta. Mín er bara byrjuð í frjálsum hér í álaborg og það var íþróttakennarinn minn sem sagði að það væri kona sem vildi tala við mig því hann hafði sagt henni að ég væri góður 100m hlaupari. Ég veit nú ekki hve góð ég er og hef verið en einmitt núna er ég í engu formi en kemst fljótlega í form þegar maður æfir 2 til 3 sinnum í viku og kannski meira ef maður hefur tíma. Svo er ég í sundi og í íþróttum í skólanum þannig að ég ætti að komast í form. En sem sagt ég er byrjuð að æfa aftur og allt kennaranum mínum að þakka. Skólinn gengur bara vel og er byrjuð að fækka tímum núna fyrir jólin og þá hefur maður meira tíma fyrir að skrifa ritgerðina sem ég þarf að skila 19.des, sami dagur og ég fer heim um jólin. Ég er í 5 manna hóp og gengur okkur bara vel einsog er og við megum fyrst byrja að skrifa sjálfa ritgerðina 17.nóv því við þurfum að fara í gegnum 5 case(tilfelli) í mismunandi stofnunum sem við munum kannski fara vinna við í framtíðinni. En því þetta er prufuritgerð þá er þetta í lagi og ekki löng. Sem sagt við fáum ekki einkunn fyrir þetta bara að vita hvort við hefðum náð eða ekki og hvar við stöndum svo að við getum bætt okkur fyrir hinar ritgerðirnar sem við þurfum að skrifa. Allt gengur bara vel og vonandi heldur það áfram. Við sjáumst bráðum á Íslandi
»
06.10.2008 18:02:14 / karussy
Loksins kemur smá færsla frá mér í kalda októbermánuði. Ég keypti mér hjól einsog ég talaði um að gera í síðustu færslunni minni. Flott hvítt hjól með blómum, er svaka gella á hjólinu. Ef við snúum okkur að öðrum málum þá gengur allt vel í skólanum og öllum þeim geira. Sundið er æðislegt..þó að maður er ekki í svaka góðu formi þá kemst maður í form áður en prófið er í janúar. Svo eru OL dagar sem við bekkurinn eigum að halda og sjáum fyrir 2. og 3 bekk(3.og 4.bekk á ísl) og verður það eftir 2 vikur. það er svaka spennandi og erum við að fara tala við fjölmiðla og fyrirtæki sem vilja styrkja okkur og gefa krökkunum gjafir þegar þetta er búið. vonandi komum við í blöðin hér á norðurjótland, getur nefnilega gagnast okkur í framtíðinni. Sem sagt gengur allt vel í skólanum og er svaka spennandi.
Það er bara eina viku þangað til haustfríið er og ég fæ samt ekki mikið frí, þarf að gera hópverkefni fyrir ritgerðina sem á að skila 19.des og lesa allt það sem ég á eftir...er smá á eftir í lærdómnum en það er samt allt í lagi, ég get samt verið með í tímanum og svoleiðis. þarf bara að lesa og læra í fríinu og auðvitað vera saman með Sören þó að hann er að fara byrja á lokaritgerðina sína núna á miðvikudaginn. Það verður spennandi að sjá hvernig honum mun ganga.
Það hefur ekki mikið gerst hjá mér síðustu vikurnar nema ég er að leita mér að öðru húsnæði og við skulum sjá hvernig það gengur í þeim geira.
vonandi verður meira næst.
knus knus frá skvísunni í álaborg
»
14.09.2008 12:45:51 / karussy
Góðan daginn allir heima á Íslandi og úti í heimi. Ég er með nýjar fréttir sem örugglega margir hafa heyrt, og hér koma fréttirnar. Ég er byrjuð í skólanum, fékk síðasta plássið í bekkinn því að það ákvaðu nokkrir ekki að bryja í skólanum núna....sem var alveg frábært fyrir mig því ég gat byrjað núna strax í skólanum. Bekkurinn sem ég er í er eini íþróttabekkurinn sem byrjaði núna í haust og erum við um 27 nem. Kerfið er alveg nýtt og erum við þau einu sem er í þessu kerfi því eldri nem. fá að klára námið sitt í kerfinu sem þau byrjuðu í. En ekki nóg með það, því eftir áramót sem sagt í febrúar þá mun skólinn flytjast lengra í burtu frá mér og þá er lengra fyrir mig að hjóla í skólan. Já gott fólk loksnins er ég að fara kaupa mér hjól....mun gera það núna á mánudaginn eða þriðjudaginn, þarf nefnilega að fara í sund í skólanum og þarf að komast til einn sundlaug sem er í Nörresundby sem er langt frá skólanum og þá er betra ef að maður getur hjólað því við fáum bara 45 mín að komast þangað og gera okkur tilbúna og borða mat, og það er ekki langur tími fyrir það allt. Það er nefnilega ömurlegt að taka strætó því maður þarf að skipta nokkrum sinnum. En það er gaman í skólanum og bekkurinn er mjög skemmtilegur og við náum vel saman sem er frábært, við erum þegar byrjað á okkar fyrsta verkefni og eigum við að skila því í byrjun október. Það er ekki hægt að segja mikið meira um skólan núna nema það er einn íslendingur í bekknum og er það fyrsti íslendingurinn sem ég hitti í álaborg. soldið skondið hehe. Ég er líka kannski komin með vinnu, svona bara 2 til 3 kvöld á viku með skólanum, gott að fá smá aukapening. en ég þarf að fara í prufu um næstu helgi og sjá hvort að þetta er eitthvað fyrir mig þannig að þið fáið að vita meira þegar ég veit meira seinna. Sören er að klára prófin sín, hann fékk að vita að hann hafi farið í eitt vitlaust próf svo að hann er í því núna og verður alla næstu viku, hann þarf að skrifa viku ritgerð en ekki munnlegt próf. svo þegar hann er búinn með það mun hann byrja á lokaritgerðinni sinni í sögu, og mun fá mastergráðuna. Þetta voru fréttirnar frá mér hér í danmörkuni, mér gengur bara vel og líður vel. verðrið er svona upp og niður einsog á Íslandi. ætla ekki að hafa þetta lengra í bili kveðja frá álaborg
»
18.08.2008 19:17:32 / karussy
Þá er sumarfríið góða búið og ég er að leita mér að vinnu. Hér kemur sem sagt stóra fréttin ef ekki allir hafa heyrt það, þá er ég að leita mér að vinnu því að ég byrja fyrst í skólanum í febrúar. það var víst eitthvað vandamál með umsóknina og þá var bekkurinn sem ég átti að vera í fullur svo að ég byrja í febrúar. Þannig að núna er ég bara að leita mér að vinnu vonandi fæ ég eitthvað sem hefur að gera með börn því það er það sem ég vil vinna við þegar ég er búin að læra en við sjáum nú bara til. ég tek bara það fyrsta sem ég fæ sama hvað það er, bara svo að ég hafi eitthverja tekjur í nokkra mánuði. en nóg um það. skal skrifa þegar ég fæ vinnu. ég vann ekki neitt í sumar og ákvað bara að slaka á með søren hér í álaborg þegar hann var ekki að læra fyrir prófin sem hann er að fara í núna í endan ágúst og svo var ég á íslandi. vil bara segja fyrirgefið við alla þá sem ég ekki hitt....en ég ákvað að vera lengur í hólminum og slaka á með mömmu og þannig hafði ég ekki mikinn tíma í reykjavík en ég kem aftur til íslands fljótlega...vonandi. En ég hafði yndislegt sumar þó að veðrið hefur ekki verið eins gott en samt gott sumar. Á meðan ég var á íslandi þá var ég bara með fjölskyldunni og slakaði á og svo hitti ég nokkra vini í reykjavík. það var frábært.
Eftir að ég kom heim til álaborg hefur veðrið ekki verið einsgott og ég vonaði en það hefur ekki stoppað mig til að fara með 2 vinkonum mínum til djurs sommarland og þá var veðrið gott...við vorum einsog litlir krakkar í leikfangaverslun. síðustu helgi var ég á Morsö þar sem søren er frá og þá var smá afmælisveisla fyrir hann. öll fjölskylda hans kom og það var mikið talað og helgið og auðvitað drukkið hehe. en einsog ég sagði þá er ég bara að leita mér að vinnu og vona að ég fái vinnu fljótlega hér í álaborg.
læt þetta duga í bili.....það gerist ekki svo mikið hjá mér einsog er.....
»
02.07.2008 15:37:00 / karussy
þá er ég komin í sumarfrí og fer að styttast í að ég kem til íslands í smá heimsókn.....vona að allir eru tilbúnir að ég komi í smá heimsókn og heilsi upp á ykkur  ég kem til landsins 19.júlí og fer beint vestur og verð þar í nokkra daga svo fer ég til reykjavík síðustu dagana áður en ég fer aftur heim til álaborg. Núna er ég sem sagt komin í sumarfrí og ætla að njóta þess....það er gott veður og mín ætla að reyna liggja eins mikið í sólbaði og ég get. svo kemur í ljós hvort að það tekst eða ekki. ég gekk bara ágætlega í prófunum þannig að ég get tekið því rólega og ekki hugsa um skólan í næstu 2 mánuði. og ætla ég að fara til viborg og århus og köben í sumarfríinu og örugglega líka kolding. ég mun fara til viborg og århus áður en ég kem til íslands og köben líka...á meðan ætla ég bara slaka á með sören þegar hann er ekki að læra fyrir 2 próf sem hann er að fara í í ágúst. hlakka til að koma til íslands...tala ekkert um neitt annað jæja ætla að hætta hér í bili....og við sjáumst fljótt á íslandi..... hafið það gott ámeðan
»
17.06.2008 18:33:42 / karussy
daman er komin með gæludýr sem hún getur ekki losnað við....þá meina ég kongulær, það er ein sem ég get bara ekki losnað við þannig að ég er búin að gera hana að gæludýri þangað til ég næ henni og þá mun hún ekki lifa lengur. Ég er ekki búin að fá mér alvöru gæludýr..hef ekki tíma til þess þannig að þetta er fínt, þarf ekki að hugsa um það heldur bara hafa augu með hvar hún er því eitthvern tíman mun ég ná henni....hehe þetta fylgir víst sumrinu hérna í danmörku. ég á eitt próf eftir og er það 30.júní og er auðvitað byrjuð að lesa fyrir það próf, þá á ég að svara ritgerðinni sem ég skilaði í maí mánuð. þá er gott að ég kann ritgerðina mjög vel og hef lesið mjög vel í gegnum bækurnar sem ég var með. Ég er líka bara að bíða eftir að fá vita hvað ég fékk úr hinum tveim prófunum, sem ég veit ekki hvernig mér gekk. en nóg um það...það styttist nú í að ég komi í heimsókn til íslands, mín mun koma 19.júlí og fara aftur heim til álaborg 30.júlí ég mun örugglega vera í rvk frá 26.júlí en ekkert er ákveðið enn.... það hafa örugglega allir verið úti í dag og slappað af á lýðveldisdeginum 17.júní...ég gerði það í tilefni dagsins, þó að ég er í dk hafið það gott
»
05.06.2008 21:22:14 / karussy
Loksins kemur smá kveðja frá dömunni í danaveldi. eftir að margir hafa spurgt hvenær ég ætla að skrifa næst svo hér kemur nokkrar línur um það sem ég hef verið að gera. Eftir að hafa skrifað og skilað ritgerðinni sem ég á svo að svara 30.júní og skrifað og skilað vikuverkefni er bara málfræðin eftir og er það próf á mánudaginn 9.júní og klukkan 15 þann dag er það próf búið. Það verður svo gott þegar prófið er búið....núna geri ég ekkert annað en að læra. Því ég verð að læra fyrir prófið sem er 30.júní kemst ég ekki á bekkjarmótið sem er 14,júní en svona er þetta...maður getur ekki verið allstaðar. vil ég því koma með smákveðju til allra sem munu vera í góðu skapi og vera á bekkjarmótinu. Eins og næstum allri vita þá er ég að fara skipta um skóla og er að fara í pædagogseminariet. en gerist það eftir sumarið. en nóg um það fyrir næstum því 2 vikur var karneval hér í álaborg og var það stuð...ég og nokkarar stelpur í skólanum voru einhyrningar...eða það vildum við gjarnan vera og enduðum á að vera ekki neitt...jú stelpur með vængi og eyru og horn á enninu og í pilsi. Hárgreiðlsan var geggjuð og tók það 3 daga að ná allt hárspreyið og glimmer úr hárinu. Það voru margir niðri í bæ þann dag og þegar fyrsti hálfleikur var búinn þá fór ég heim til sören og slakaði á nema hvað við og nokkrir vinir hans byrjuðum að syngja í syngstars og svo actionary...vil bara segja eitt ef maður vill fá smá athygli þó að maður er inni þá er bara singstars málið og opna eins marga glugga og þá vita allir sem labba framhjá hvað þú ert að gera  hehe sem sagt það hefur verið mikið að gera hjá mér og mun ég fyrst slaka almennilega á í júlí mánuðinn og þegar ég kem heim 19.júlí. þó að það hafi verið langt síðan ég skrifaði síðast þá mun ég hætta hér bið ég bara að heilsa ykkur öll og við sjáumst í júlí mánuðinn kveðja frá dömunni í álaborg
»
04.05.2008 13:32:19 / karussy
sunnudagur og hvíldardagur hjá mér hehe síðast kvartaði ég undan rigningunni og leiðindaveður og er það rétt að kvarta smá því í gær og í dag hefur og er gott veður...sól allan daginn og bjart fram á kvöld. en nóg um það, sunnudagur, þá á maður ekki að gera neitt nema hvíla sig og undirbúa sig fyrir vikuna sem er að byrja. það er ég einmitt að gera, bara slappa af áður en ég fer að skrifa alla nóttina. það styttist í að skólinn er búin og prófin fara byrja og svo er sumarfríið komið og þá er sól vonandi alla daga, það er bara eitthvað sem maður getur vonað. ég sagði í síðasta bloggi að ég myndi leika smá túrista um helgina en það breyttist aðeins og verður að bíða þangað til betri tíma, en vonandi verður það eins fljótt og hægt er. Svo er carnival eftir 20.daga og það verður stuð, við erum nokkrar stelpur úr bekknum sem ætlum að vera einhyrningar, allir sem ætla að fara á carnival munu fara í búninga og er þemað þetta árið "magi i luften" en það eru ekki allir sem fylgja þemainu, þetta verður stærra og stærra einsog danskir dagar í sth. jæja ætla að fara horfa á hot shots og slappa aðeins meira af áður en ég þarf að byrja skrifa.
vonandi verður betra veður á íslandi, og þið fáið líka gott sumar einsog í fyrra og vonandi verður sumarið líka gott í danmörku.
»
28.04.2008 21:04:49 / karussy
jæja núna skulum við tala um veðrið hér í álaborg. Það er alveg sama hvort að ég er á íslandi eða í danmörku þá kvarta ég alltaf að veðrið er ekki nógu gott. en svona er þetta. það er búið að vera gott veður en samt nokkrir dagar inn á milli með rigningu...það er kannski jákvætt að það rignir annað slagið en samt hundleiðinlegt. já mér leiðist rigningu...það er kannski góð leið að vera inni og hafa það huggó undir teppi með heitt kakó og horfa á mynd. En það er oft rigning hér þannig að maður gerir það ekki oft...kannski þegar það eru þrumur og eldingar. já veðrið hefur verið gott hjá mér sem er bara fínt og fuglarnir farnir að syngja allan daginn og vekja mig nú stundum snemma þegar ég hef ákveðið að sofa lengi. en hvað getur maður gert, ekki er hægt hrópa útum gluggan á fuglanna án þess að allir nágrannarnir taki eftir því. prófin eru að styttast og er farin að kvíða smá en svona er þetta alltaf smá prófkvíða sem vonandi lagast. einsog næstum allir ef ekki allir þá mun ég vera í dk í sumar og gera hitt og þetta, þá vona ég svo sannarlega að ég fái gott veður því annars verður það leiðinlegt, en bara róleg ég kem í heimsókn í ágúst en það kemur bara í ljós. jæja gott fólk nær og fjær....læt þetta duga....kem fljótlega með nýjar myndir er að fara leika túrista um helgina yey 
»
17.04.2008 19:34:50 / karussy
Sól sól skín á mig, já þó að það sé bara apríl er sólin farin að skína mikið hér í álaborg og er það æðislegt því þá er ekki langt þangað til sumarið kemur. Ég er meira segja næstum því búin að setja vetraúlpuna á hilluna..hehe en samt einsog þegar ég bjó í rvk þá klæddi ég mig alltaf vel og geri það ennþá, er alltaf svo vel klædd að nokkrir í bekknum grínast með að spyrja mig hvort ég er ennþá á klakanum  en sól er æðislegt þegar það er búið að vera rigning í smá tíma en samt ekki of mikið sem betur fer. Um helgina þá mun ég ekki þurfa á úlpuna að halda því það á að vera sól og hiti og ég ætla einmitt að nota tíman til að slaka á og fara í dýragarðinn, það er nú langur helgi hjá mér því það er store bededag á morgun og fullt af fermingum þannig að ég verð bara skrifa ritgerðina í staðinn. en svo eru tímarnir á mánudögum og þriðjudögum búnir þannig að allt er að styttast og skólinn er að vera búinn og prófin að byrja. ég þarf að skila ritgerðinni 22.maí minni mig og svo prófin í júní. Einn kennari minn er að hjálpa mér með málfræðinni og orðaröðinni sem er fínt því þá mun mig ganga aðeins betur í verkefnunum sem ég mun skrifa ein. það er erfið vinna en ég ætla ekki að gefast upp. Svo er eitt sem ég hefði ekki dottið í hug er að kennarinn skilur íslensku þegar maður skrifar setningu þannig ef hann skilur ekki hvað ég er að meina þá prófa ég að skrifa á íslensku fyrst og svo útskýri ég en ég er samt að verða duglegri í að skrifa á dönsku en á íslensku....þið verðið bara að fyrirgefa mig fyrir það Nóg um það...sem sagt nóg að gera í skólanum en samt hef ég tíma fyrir að slaka aðeins á og fara í bíó eða leigja bara spólu og svoleiðis...ég hef samt stórar fréttir að segja og í gær fór ég með vinkonu minni í bíó og við fórum á the eye sem er hryllingsmynd en samt var myndinn ekki það hræðileg heldur meiri spennumynd en hryllingsmynd. en já þetta voru stóru fréttirnar mínar þessa vikuna hehe  ég skal reyna ekki láta bíða allt of langt á milli þangað til ég skrifa næst þannig ég ætla láta þetta duga. heyrumst síðar, bleble
»
12.04.2008 10:58:20 / karussy
I dag á hún mamma afmæli og eins hjá afa sem átti afmæli fyrir 2 dögum síðan þá er þetta stórdagur. og líka fyrir snæfells menn því leikur númer þrjú er einmitt í dag líka klukkan 16 á íslenskum tíma og eiga allir að fylgjast með því þetta er spennandi leikur, vona bara að þeir vinni leikinn en það kemur svo í ljós. Til hamingju með daginn elsku mamma og vona að dagurinn verður/ er góður hjá þér. hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún mamma, hún á afmæli í dag....vúúhúú til hamingju með daginn þú verður bara að muna að slappa af og njóta daginn eins mikið og þú getur og láta dekra við þig  við heyrumst fljótlega. knus Karina koma svo snæfell...
»
10.04.2008 18:02:12 / karussy
hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag, han á afmæli han afi, hann á afmæli í dag....til hamingju með daginn afi minn. vona að þú hafir haft góðann dag og kvöldið verði það sama. vona að allt gengur vel hjá þér með allt saman. við heyrumst og sjáumst nú fljótlega aftur...til hamingju með daginn
eitt að lokum vil ég bara segja...koma svo snæfell.
knus Karina
»
05.04.2008 18:15:53 / karussy
verð að biðja ykkur öll afsakanir hvað ég hef verið lengi um að skrifa og eru margir búnir að spyrja mig hvenær ég mun skrifa næst og hvort ég ætla ekki að fara skrifa meira á síðuna mína en núna gott fólk kemur smá frá mér. ef við byrjum á því að mamma kom um páskanna til mín einsog ég hef skrifað í hinum bloggunum mínum, við slöppuðum ekkert á ég og mamma heldur fórum við bæði til viborg og århus og heimsækja vini. við fengum líka nokkra í heimsókn. það var fínt að hitta alla því nokkrir hef ég ekki séð í langan tíma og mamma ekki heldur en þau sem við heimsóktum í århus hef ég ekki séð í 10 ár sem var æðislegt að hitta þau núna aftur. Eftir allt þetta va ég ekki meira í fríi frá skólanum þannig að ég fór í skólan og svona. Svo vikunni eftir kom Linda systir og þó hún var bara í nokkra daga þá gerðum við margt. við fórum í búðir og ég sýndi álaborg eða smá af borginni og svo skólann minn og við fórum líka í óperuna og sáum madame butterfly sem var góð sýning. ásíðasta deginum þeirra þá fórum við til köben og ég ákvað að skella mér með og hitta ættingjana þar og fara í kirkjugarðinn. ég er síðan búin að vera á fullu í skólanum og lesa mig til fyrir ritgerðina og líka gera verkefni þannig það er mikið að gera hjá mér, svo auðvitað er ég líka búin að vera hitta vini og svona einsog maður verður líka að gera annað slagið. og núna í apríl og maí mánuði mun ég hafa mjög mikið að gera og reyni einsog ég get að skrifa eins mikið hér. það gerist voðalítið hjá mér, ég meina nýtt en það mun kannski breytast í sumar þegar skólinn er búinn. núna er ég bara að bíða eftir að sumarveðrið komi hér í dk og ekki rigning en það er víst mjög oft rigning hér í dk einsog flest vita..hehe ég vil nú fara að enda þetta hér í bili er að fara horfa á moulin rouge og joan vinkona mín er að koma með mat handa mér því hún vinnur á burger king og við ætlum að horfa á fullt af myndum í kvöld. vil líka óska snæfell til hamingju með að komast í 4liða úrslit og vona að þeir fara alla leið og enda bara á að vinna bikarinn, en ég mun fylgjast með þó að maður er í danaveldinu.
en ég ætla að kveðja í bili
»
Síður: 1 2 3
|
Heimsóknir
Í dag: 6 Alls: 4995
|